Páskaeggjabingó í Mörk 29.03.2021 Fréttir MörkÍ síðustu viku var haldið páskabingó á öllum hæðum Markar. Eins og sjá má á myndunum var mikil stemning meðal heimilismanna. Vinningshafar voru að vonum hæstánægðir með vinningana sína og enginn fór tómhentur frá borði því allir fengu málsháttaregg.